Leita í fréttum mbl.is

Svona gera menn ekki

Ef eitthvað er að marka "grænt" í Vinstri grænu, þá verður að stoppa þetta strax og ný ríkisstjórn tekur við. 
mbl.is Hvalveiðar leyfðar til 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verk að vinna

Undirritaður var einlægur stuðningsmaður fyrri ríkisstjórnar og fannst þegar hún var mynduð að þarna myndi fara stjórn sem kæmi mörgu góðu í verk, enda mikið af hæfileikafólki tengt þeim tveimur stjórnmálaflokkum sem hana mynduðu. Fyrst eftir að ósköpin miklu dundu yfir (og um stund leit út fyrir að enginn vissi sitt rjúkandi ráð), vonaði maður að fljótlega færi að örla á forystu og sýn og að skref yrðu loks tekin í átt að Evrópusambandsaðild, svo og tiltekt í stjórnkerfinu, byrjað á Seðlabanka, sem klárlega var rúinn tiltrú á alþjóðavettvangi eftir glannalega framgöngu aðalbankastjórans og pólitíska tilburði hans.

En nei, vikurnar liðu og lítið gerðist. Jú, eitt og eitt smáatriðið var afgreitt og kannski einstaka stórir hlutir, en forystan og sýnin var ekki mjög áberandi. Þess vegna mætti undirritaður á kjallarfund Samfylkingarfélags Reykjavíkur í síðustu viku og studdi það sem fram kom þar. Nú hefur verið höggvið á þann hnút sem hertist um háls flokkanna tveggja sem mynduðu Þingvallastjórnina. Sjálfstæðisflokkurinn er móður mjög að lokinni 18 ára stjórnarsetu og veitir ekki af hvíldinni til að byggja sig upp með nýju fólki og losa sig við arfleifð Davíðstímans.

Nú hillir undir nýja ríkisstjórn - hreinræktaða rauða stjórn. Það er sjaldgæft í íslandssögunni og mun hún eiga það sammerkt með þeim fyrri að vera minnihlutastjórn og til bráðabirgða.

Það verða við hana talsverð nýmæli. Kona verður forsætisráðherra í fyrsta skipti, ef Jóhanna Sigurðardóttir verður valin til starfans eins og allt bendir til. Það er vel við hæfi að sá dugmikli jafnaðarmaður ryðji þann veg.

En það eru tækifæri til að brjóta fleiri tabú. Er ekki um að gera að láta VG hafa bæði utanríkis- og dómsmálaráðuneytið? Þetta eru ráðuneyti sem flokknum lengst til vinstri hefur aldrei verið treyst fyrir í íslandssögunni. Það eru engar forsendur fyrir því að standa á þeirri bremsu lengur. Ef VG fellst á að stíga nauðsynleg Evrópuskref, þá væri bara hressandi að fá utanríkisráðherra úr þeirra röðum og nýstárleg rödd sem þá myndi heyrast frá Íslandi. Áhugavert væri líka að fá "innanríkisráðherra" úr þeirra röðum til að koma á friði og spekt á götum úti, eftir óöldina undanfarið. Það er líka kominn tími til að gefa lögfræðingum frí frá því ráðuneyti og um að gera að brjóta það tabú líka.

En verkefnin eru annars þessi:

1. Leysa stjórn seðlabankans frá störfum.

2. Ráða einn seðlabankastjóra - helst virtan erlendan hagfræðing sem færi í að endurreisa traust á íslenskum innviðum erlendis.

3. Fá erlenda sérfræðinga til að rannsaka banka- og efnahagshrunið.

4. Grípa til róttækra aðgerða til bjargar heimilum og fyrirtækjum.

5. Breyta stjórnarskrá til að gera ráð fyrir aðild að Evrópusambandinu.

6. Sækja um aðild að Evrópusambandinu og hefja aðildarviðræður.

7. Boða til kosninga. Ganga til þeirra með það markmið að mynda vinstri stjórn eftir þær (þ.e.a.s. syngja ekki sönginn um "óbundinn til kosninga").

8. Fá aðila vinnumarkaðarins og jafnvel fleiri hagsmunasamtök í samfélaginu að samráðsborði sem hittist a.m.k. vikulega með ríkisstjórninni á meðan við erum að vinna okkur upp úr kreppunni. 

9. Upplýsa, upplýsa, upplýsa. Ríkisstjórninni væri ekki vorkunn að ljúka hverjum einasta degi með blaðamannafundi eða orðsendingu. Forsætisráðherra ætti að tala við þjóðina a.m.k. vikulega.

10. Fara út á meðal fólksins, tala mannamál, draga ekkert undan og veita fólki von um samfélag jöfnuðar sem lifir í friði við aðrar þjóðir, virðir alþjóðleg gildi heiðarleika, lítillætis og náttúruverndar, þar sem náttúran hefur gildi í sjálfu sér en ekki bara sem viðfang græðgi mannskepnunnar.

Kjósendur fá svo tækifæri til að kveða upp sinn dóm yfir flokkunum í vor. Eins hafa heyrst raddir um að íslenska stjórnkerfið hafi gengið sér til húðar og að jafnvel þurfi að stofna nýtt lýðveldi. Það er allavega tækifæri nú til að endurskoða stjórnarskrána frá grunni, en það hefur staðið til allan lýðveldistímann.

 

 

 

 

 


mbl.is Formlegar viðræður hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Skallagrímur

Það nær auðvitað ekki nokkurri átt að virðulegt félag eins og Skallagrímur í Borgarnesi sé í þessari 3. deild og löngu kominn tími til að losna úr þeirri úlfakreppu. Áfram Borgarnes!
mbl.is Fjögur klár í undanúrslitin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bræður munu berjast

Það er eðlilegt að Gunni óttist Skagaliðið, þar sem öflugur bróðir hans, Árni Thor Guðmundsson, fyrrverandi HK maður stjórnar miðjunni. Gaman að þessu og gangi ykkur vel bræður, hvernig sem fer.

:) 


mbl.is „Enginn óskadráttur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um ráðherratitil

Loksins mál sem kveikir í mér, enda skrifaði ég um þetta á Kreml á sínum tíma. Ég tek ofan fyrir Steinunni Valdísi fyrir að leggja til að gamli valdsmannstitillinn ráðherra verði lagður niður, þó hún geri það raunar ekki á þeim forsendum sem mér finndust réttmætastar. Það er auðvitað orðið löngu tímabært að kasta út í hafsauga þeirri ímynd úr forneskjulegu stéttskiptingar- og valdaelítusamfélagi að þarna sitji einhverjir "herrar" sem "ráði yfir okkur" og upp verði tekinn titill sem samrýmist þjónustusamfélaginu og þjónustuhlutverki ríkisins.

Mér hefur þótt snyrtilegur siðurinn sem Engilsaxar hafa í þessum efnum (Bretar og Bandaríkjamenn, þ.e.a.s. um flest embætti nema þess sem í forsæti situr) þ.e. að kalla þetta einfaldlega ritara (sbr. foreign secretary í Bretlandi o.s.frv.).

Þannig yrði það sem nú heitir utanríkisráðherra ritari utanríkismála eða utanríkismálaritari, það sem nú kallast menntamálaráðherra yrði ritari menntamála eða menntamálaritari, fjármálaráðherra gæti verið ritari ríkisfjármála, eða ríkisfjármálaritari, eða einfaldlega fjármálaritari o.s.frv.

Ég held þó að forsætisráðherrann ætti að vera undantekning. Hann gæti annað hvort borið þann titil áfram, verið einfaldlega "ráðherra" eða ríkisritari (sbr. secretary of state, þó það sé ekki alveg það sama).


Latasti bloggari í heimi

Tónleikarnir gengu vel. Hér má sjá tón- og sjóndæmi. Meira síðar.

http://myspace.com/bn060607


Jibbí!

Í dag er uppstigningadagur!

Undirbúningur tónleika stendur sem hæst

Nú styttist í tónleika Bands nútímans í Salnum 6. júní (sjá: http://www.salurinn.is/event_info.asp?event_id=4482). Ég hvet vini og kunningja til að tryggja sér miða. Við strákarnir lofum góðum endurfundum, krydduðum upplestrum úr "bloggfærslum" þess tíma, dagbókinni minni sem ég skrifaði sem seinni tíma heimild um sóknina til frægðar og frama.

:)

Fyrir þá sem vilja kynna sér sándið í Bandinu erum við með myspace síðu (http://myspace.com/bandnutimans).

Sjáumst.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband