30.12.2009 | 11:05
Afneitun
Þessi ákvörðun Ríkisútvarpsins er auðvitað með hreinum ólíkindum og dæmi um þá undarlegu afneitun sem Íslendingar eru í gagnvart þeirri staðreynd að við erum aukaaðilar að Evrópusambandinu í gegnum EES samninginn og Schengen samstarfið. Það sem gerist í Brussel snertir okkur beint á hverjum degi, þó við höfum hingað til valið að reyna ekki að hafa áhrif á það. Þessi ákvörðun Ríkisútvarpsins virðist líka lýsa þeirri tilfinningu að ef við tölum ekki um það þá sé það ekki að gerast. Kannski þessi ótrúlega afneitun á raunverulegri stöðu landsins eigi einhvern þátt í einangrun okkar sem þjóðar í kjölfar efnahagshrunsins?
Vilja fréttaritara RÚV í Brussel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |